Leggðu góðu starfi lið - Þitt framlag skiptir máli

miðvikudagur, 5. júlí 2023

Guðni

Rótarýsjóðurinn – flaggskip hreyfingarinnar

Rótarýklúbbar um allan heim leggja fé til sjóðsins og ráðstafar hann um 100 milljónum dollara árlega til mannúðar-, fræðslu- og menningarmála.

  • Langstærsta verkefni Rótarý undanfarið hefur verið baráttan gegn lömunarveiki, svo nefnt Polio-Plus verkefni. Gríðarlegur árangur hefur náðst og hefur lömunarveiki verið nánast útrýmt í heiminum. STYRKTU VERKEFNIРHÉR.
  • Tveggja ára námsstyrkir til meistaranáms í friðarmálum er eitt af nýrri verkefnum sjóðsins og hafa 11 Íslendingar nú þegar hlotið þennan glæsilega styrk.
  • Sjóðurinn styrkir fjölmörk verkefni um allan heim.
  • 91% framlaga í sjóðinn nýtist beint til mannúðarmála sem er gríðarlega hátt hlutfall.

Sjá nánar um sjóðinn hér.

Leggðu sjóðnum lið! Skattaafsláttur í boði

Þegar þú leggur sjóðnum lið er hægt að útvega hreint vatn og hreinlætisaðstöðu fyrir þá sem þurfa. Það veitir von og betri heilsu á svæðum sem áður herjuðu sjúkdómar eins og lömunarveiki. Það getur veitt bætta efnahagsþróun og ný tækifæri. Þín hjálp getur veitt þetta allt, og meira til.

Rótarýumdæmið á Íslandi hefur stofnað Rótarý styrktarsjóð og fara öll framlög í gegnum hann. Með því eiga gefendur möguleika á að fá skattaafslátt.

Gefðu þangað sem þörfin er mest

Þegar þú gefur í Rótarýsjóðinn, þá styrkir þú þjónustuverkefni okkar – verkefni sem útrýma lömunarveiki, stuðla að friði og framþróun.

Þú getur valið í hvað þínir peningar fara. Ef þér er sama, ráðleggjum við þér að gefa í Annual Fund – share eða Polio Plus Fund

Þegar rótarýfélagar gefa beint í sjóðinn telst framlagið einnig með framlagi rótarýklúbbsins!

GEFÐU Í SJÓÐINN HÉR

Boys fill containers with water at a borehole donated by the Rotary Club of Muyenga, Uganda.