Fyrirtækjaheimsókn í Ráðhúsið

miðvikudagur, 20. mars 2019 18:15-19:30, Kea Hotel Hafnarstræti 87-89 600 Akureyri

Kæru félagar í Rótarýklúbbi Akureyrar og Rótarýklúbbi Eyjafjarðar,

 

Á miðvikudaginn förum við í vinnustaðaheimsókn í Ráðhúsið, Geislagötu 9, þar sem Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri, mun taka á móti okkur og sýna okkur Ráðhúsið. Á eftir verður borðað í mötuneytinu hjá Tony.

 

Eins og áður þegar farið er út úr húsi greiða allir félagar 1.850 kr. sem Geirlaug gjaldkeri mun sjá um að rukka.

 

Það er mjög mikilvægt að allir skrái sig á fundinn í síðasta lagi á miðvikudagsmorgun kl. 10 og gott ef þið merkið líka við ef þið komist ekki.

 

Það eru þrjár leiðir til að skrá sig og nóg að velja eina:

Nota þetta google skjal sem allir komast inná https://docs.google.com/spreadsheets/d/1_8hN37ajHBnijBJQOK3leeix4saTArB4blrYxdsSAEE/edit?usp=sharing

Senda póst á Góu ritara kgoa@simnet.is

Melda sig á Facebook

 

Vonast til að sjá sem flesta.