80 ára afmælisfundur Rótarýklúbbs Akureyrar

miðvikudagur, 5. september 2018 18:15-19:30, Kea Hotel Hafnarstræti 87-89 600 Akureyri
Rótarýklúbbur Akureyrar var formlega stofnaður þann 4. september 1938 og ætlum við að rifja upp 80 ára sögu klúbbsins á næsta fundi.

Það var haldið upp á afmælið með glæsibrag þann 17. mars sl. og var þá miðað við fyrsta fund klúbbsins.

Fundurinn er í umsjón Kynningarnefndar en Ólafur Jónsson er formaður nefndarinnar.

Það er við hæfi að halda fundinn á Hótel KEA þar sem klúbburinn hefur lengst af verið með sína fundi.